Norðurþing

Norðurþing

Nýjustu fréttir

  • Ljósmyndasamkeppni Norðurþings

    fimmtudagur 2.sep.10 13:33

    Norðurþing efnir til ljósmyndasamkeppni vegna opnunar á nýjum vef sveitarfélagsins.  Samkeppni verður í eftirfarandi flokkum:  „Æskan og mannlífið", „Náttúran í Norðurþingi" og „Mitt Norðurþing".

    Veitt verða peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki.


  • Ganga Ferðafélagsins Norðurslóðar

    miðvikudagur 1.sep.10 09:10
    Dettifoss

    Næstkomandi laugardag, þann 4. september, er fyrirhuguð ganga á vegum Ferðafélagsins Norðurslóðar.  Gengið verður meðfram Jökulsá að austan frá Vestaralandi í Öxarfirði og að Gloppu.


  • Sundlaug Húsavíkur 50 ára

    miðvikudagur 25.ágú.10 15:18

    Í tilefni 50 ára afmælisins er íbúum og gestum sveitarfélagsins boðið frítt í sund laugardaginn 28.ágúst.

    Terta í boði.

    Opið er frá 10:00 - 17:00.

  • Viðgerð á hitaveitustofnæð

    miðvikudagur 25.ágú.10 13:14

    Mánudaginn 30. ágúst verður gert við hitaveitustofnæð í bæinn. Heitt vatn verður tekið af kl. 8:30 og verður vatnslaust fram eftir degi. Svæðin sem verða vatnslaus eru fyrir neðan bakka og í hluta norðurbæjar. Þeir íbúar norðurbæjarins sem hafa vatn gætu orðið varir við þrýstifall. Fyrir nánari upplýsingar eru hægt að hafa samband við Orkuveitu Húsavíkur í síma 464-0900.

  • Laust starf við ræstingar á Grænuvöllum

    þriðjudagur 17.ágú.10 15:43
    Leikskólinn Grænuvellir

    Auglýst er eftir starfsmanni í ræstingar við leikskólann Grænuvelli á Húsavík.

    Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september 2010.

    Við leitum að áhugasömum, bjartsýnum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúin að starfa með okkur af fagmennsku og áhuga.


Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning